Helga Dagný Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Icepharma Velferð, dvaldi nýverið í Danmörku þar sem hún átti fundi og tók þátt í umræðum með hagaðilum innan danska heilbrigðiskerfisins um þróun og framtíð velferðartækni innan heilbrigðiskerfisins.

Helga Dagný hefur í gegnum störf sín lagt áherslu á að velferðartækni ein og sér leysir ekki áskoranir heilbrigðiskerfisins, heldur sé hún hluti af stærra og flóknara púsluspili sem krefst virks samstarfs milli margra aðila; notenda, heilbrigðisstarfsfólks, stjórnenda, tæknifyrirtækja og samfélagsins alls.

Í heimsókninni fundaði Helga meðal annars með Laureu Klitgaard, formanni IDA – verkfræðingafélags Danmerkur og með fulltrúum Ældre Sagen, dönskum samtökum sem vinna að því að tryggja öldruðum öruggt, gott og mannsæmandi líf. Þar var rætt um framtíðarsýn og tækifærin sem felast í því að hafa virkt samtal.

„Þetta voru virkilega lærdómsríkir dagar og mikil innblástur fyrir okkur á Íslandi. Samstarf milli ólíkra hagaðila  með skýra sýn og virðingu fyrir hvort öðru er lykillinn að árangri í nýsköpun og velferðarþjónustu,“

Teton, eitt af þeim fyrirtækjum sem Helga heimsótti, hefur þróað snjalllausnir sem veita umönnunaraðilum svokallað „auka auga“ með því að gefa innsýn og vara við fallhættu. Eins og Malene, yfirhjúkrunarfræðingur á Nykøbing Falster sjúkrahúsinu, orðaði það: „Tæknin gefur okkur aukið öryggi og ró í vinnunni.“ Þar ræddi Helga einnig við Ricco Dyhr sjúkrahússtjóra Sjællands Universitetshospital, yfirhjúkrunarfræðinga og Dorthe Boe Danbjørg formann danska hjúkrunarfræðingafélagsins, Dansk Sygeplejeråd.

Áhersla var lögð á mikilvægi þess að hjúkrunarfræðingar og annað heilbrigðisstarfsfólk komi snemma að þróun/prófunum nýrra lausna, og að frumkvöðlar taki tillit til raunverulegra þarfa notenda. Nykøbing Falster spítalinn var einmitt fyrsti spítalinn til að innleiða lausn Teton og var sérstaklega gagnlegt að heyra hvernig samstarfið þróaðist þar.

Einnig heimsótti Helga forstjóra hjúkrunarheimila og samtök eldri borgara í viðkomandi sveitarfélögum, þar sem lögð var áhersla á að kynna lausnirnar og fá beint samtal og hugmyndir frá þeim sem þjónustan snýr að.